Í Steinshúsi verður ljóðadagskrá á Hamingjudögum, sem hefjast á morgun og standa fram á sunnudag.
Ljóðskáldin Anton Helgi Jónsson og Brynja Hjálmsdóttir flytja eigin ljóð. Anton Helgi mun lesa upp fimmtudagskvöldið 23. júní kl. 20 og segja frá áhrifum Steins á ljóð sín. Brynja Hjálmsdóttir, sem nýlega hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör, mun lesa upp eigin ljóð og spjalla um þau og áhrif Steins á ljóðagerð sína laugardagskvöldið 25. júní kl. 20.
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkti viðburðina.