Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur á Sjúkrahústúninu og í Blómagarðinum, Austurvelli á Ísafirði föstudaginn 17. júní. Einnig verða hátíðarhöld á Hrafnseyri.
Ísafjörður – dagskrá:
11:30-12:30 Andlitsmálun í boði í Safnahúsinu
12:30-13:05 Kómedíuleikhúsið sýnir Bakkabræður í Safnahúsinu
Viðburður á Facebook
13:45 Skrúðganga frá Silfurtorgi að hátíðarsvæði á Sjúkrahústúninu
14:00-16:00 Setning hátíðahalda á Sjúkrahústúninu
- Lúðrasveit TÍ spilar fjöruga tóna
- Hátíðarræða – Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
- Hátíðarkór. Stjórnandi: Tuuli Rähni
- Ávarp fjallkonu
- Hoppukastalar, sölutjöld, andlitsmálun og allskonar fjör
15:00-17:00 Harmonikkuball í Tjöruhúsinu, Neðstakaupstað. Kaffiveitingar í boði Tjöruhússins.
15:00-17:00 Opið á sögusýningu um Húsmæðraskólann Ósk í Tónlistarskóla Ísafjarðar
16:30-18:00 Opnun sýningarinnar human · nature | mannleg · náttúra í Hversdagssafninu.
Viðburður á Facebook
18:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum, Austurvelli
Fram koma Katla Vigdís og Salóme Katrín. Ókeypis aðgangur.
Viðburður á Facebook
20:00 Hátíðartónleikar tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið í Hömrum
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari leikur fjölbreytta tónlist fyrir
selló, meðal annars eftir Halldór Smárason.
Viðburður á Facebook
Hrafnseyri – dagskrá:
13:00 – 13:45 Hátíðarguðþjónusta: sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir prestur á Þingeyri prékdikar og þjónar fyrir altari.
Kirkjukór þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jóngunnars Biering Margeirssonar, sem einnig sér um undirspil.
14:15 Setning Þjóðhátíðar.
Hátíðarræða: Halldór Þorgeirsson, formaður loftlagsráðs.
15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda.
Tónlist: Bríet Vagna Birgisdóttir syngur.
Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.
Hátíðinni verður streymt.
Opnun myndlistarsýningar sumarsins í burstabænum eftir myndlistarmanninn Þóri Frey Höskuldsson.
Einnig hefur listaverkefnið Umhverfing 4 fengið leyfi til að setja upp listsýningu í útihúsunum á Hrafnseyri, og verður hún opin fyrir hátíðargesti.
Kaffiveitingar á meðan hátíð stendur.
Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.
Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30.
Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00.
Vinsamlegast hafið samband við reception@uwestfjords.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútuna.
Kaffi og afmælisterta í boði Hrafnseyrar verður á meðan á dagskrá stendur fram til kl. 17:00. Einnig verður hægt að kaupa súpu með brauði.