Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Vesturbyggðar var haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar 9. júní 2022.
Bæjarstjórn skipa nú Jón Árnason, Ásgeir Sveinsson, Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, Anna Vilborg Rúnarsdóttir, Friðbjörn Steinar Ottósson, Guðrún Eggertsdóttir og Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir.
Á fundinum var Jón Árnason var kjörin forseti bæjarstjórnar, Friðbjörn Steinar Ottósson var kjörinn fyrsti varaforseti og Ásgeir Sveinsson annar varaforseti.
Bæjarráð verður skipað þeim Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur, Jóni Árnasyni og Önnu Vilborgu Rúnarsdóttur og mun Þórkatla Soffía gegna formennsku.
Á fundinum var samþykkt að núverandi bæjarstjóri Vesturbyggðar, Rebekka Hilmarsdóttir starfi áfram þar til gengið hefur verið frá ráðningu bæjarstjóra.
Samþykkt var á fundinum að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla til að skipa í ráð og nefndir Vesturbyggðar.