Samkvæmt upplýsingum á vef Stjórnarráðs Íslands hafa flestar af þeim 15 aðgerðum sem starfshópur lagði til í kjölfar snjóflóða á Flateyri í janúar 2020 komið til framkvæmda og er nú lokið eða komnar vel á veg.
Þetta kemur fram í samantekt verkefnisstjórnar sem skipuð var til að fylgja eftir tillögum starfshópsins og var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar á dögunum.
Starfshópurinn sem skipaður var í kjölfar snjóflóðanna hafði það hlutverk að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri. Aðgerðunum 15 sem hópurinn lagði til var ætlað að efla innviði og treysta stoðir byggðarinnar.
Meðal aðgerða sem unnið hefur verið að:
- Ísafjarðarbæ var veittur styrkur úr almennum varasjóði til að mæta útgjöldum vegna snjóflóðanna
- Snjóflóðavarnir hafa verið efldar
- Skipulag og viðbragð almannavarna hefur verið endurskoðað
- Skipulag og viðbúnaður heilbrigðisþjónustu hefur verið eflt
- Ný varaaflsstöð hefur verið sett upp
- Fjármagn var tryggt til kaupa á björgunarbát
- Starfshópur vinnur að tillögum að úrbótum í húsnæðismálum
- Samningur um nýsköpunar- og þróunarverkefni hefur verið undirritaður
- Rekstrarstyrkur var veittur Lýðháskólanum
- Styrkir voru veittir til verkefna sem tengjast almenningssamgöngum