Föstudaginn 6. maí munu Halla María Ólafsdóttir, Jóhanna Ýr Barðadóttir, Jón Karl Ngosanthiah Karlsson, Snæfríður Lillý Árnadóttir, Viktoría Rós Þórðardóttir og Weronika Anikiej kynna nýsköpunarverkefni sitt Hundagarðurinn á Hauganesi, en þau eru öll nemendur í Menntaskólanum á Ísafirði. Verkefnið unnu þau í tengslum við áfangann Hugmyndir og nýsköpun sem er kenndur í Menntaskóla Ísafjarðar. Verkefnið var einnig hluti af samkeppninni, Ungir frumkvöðlar og komst þar í 33 liða úrslit.
Ólöf Dómhildur, kennari mun einnig kynna áfangann, Hugmyndir og nýsköpun, þar sem nemendur undirbjuggu sig fyrir keppnina. Sagt verður frá keppninni og vörumessu sem haldin var í Menntaskólanum fyrir stuttu.
Vísindaportið er opið öllum og hefst stundvíslega klukkan 12:10 og fer fram í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða á 2. hæð. Erindið fer fram á íslensku og því verður ekki streymt að þessu sinni. Allir hjartanlega velkomnir.
Nemendur:
Halla María Ólafsdóttir, nemandi við Menntaskólann á Ísafirði
Jóhanna Ýr Barðadóttir, nemandi við Menntaskólann á Ísafirði
Jón Karl Ngosanthiah Karlsson, nemandi við Menntaskólann á Ísafirði
Snæfríður Lillý Árnadóttir, nemandi við Menntaskólann á Ísafirði
Viktoría Rós Þórðardóttir, nemandi við Menntaskólann á Ísafirði
Weronika Anikiej, nemandi við Menntaskólann á Ísafirði
Kennari:
Ólöf Dómhildur kennari á list og nýsköpunarbraut í Menntaskólanum á Ísafirði. Menntun- Myndlist -BA í frá Listaháskóla Íslands, Hagnýt menningarmiðlun- MA og nám til kennsluréttinda í Háskóla Íslands.