Á aðalfundi Landsvirkjunar fyrir helgina var samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 15 milljarðar króna fyrir árið 2021.
Rekstrartekjur síðasta árs voru nærri 80 milljarðar króna og hagnaður um 30 milljarðar króna. Af hagnaði eru greiddar um 10 milljarðar króna í tekjuskatt.
Eignir Landsvirkjunar eru bókfærðar á um 580 milljarða króna og eigið fé þar af eru um 310 milljarðar króna.
3,2 milljónum tonnum af CO2 afstýrt
Fram kom í ávarpi forstjóra Harðar Arnarsonar að kolefnisspor fyrirtækisins var einungis 1,2 grömm af koldíoxíðígildum á kílóvattstund, sem er einstaklega lítið. Þá hafi svokölluð forðuð losun verið nærri 3,2 milljónir tonna af CO2-ígildum á árinu. „Forðuð losun er sú losun sem komið er í veg fyrir þegar viðskiptavinir velja að kaupa raforku af okkur frekar en á meginlandi Evrópu, en þessi tala yrði um tvöfalt hærri ef miðað væri við heiminn allan.“
Gunnar Tryggvason í stjórn
Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jónas Þór Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Gunnar Tryggvason, Jón Björn Hákonarson og Soffía Björk Guðmundsdóttir.