Frestur til að skila inn framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga 14. maí nk. rann út á hádegi.
Í Strandabyggð verða tveir listar í kjöri. Áður hefur verið birtur listi Strandabandalagsins.
Einnig er fram kominn A – listi Almennra borgara og er hann þannig skipaður:
- Matthías Sævar Lýðsson
- Hlíf Hrólfsdóttir
- Guðfinna Lára Hávarðardóttir
- Ragnheiður Ingimundardóttir
- Kristín Anna Oddsdóttir
- Magnea Dröfn Hlynsdóttir
- Guðrún Elínborg Þorvaldsdóttir
- Þórður Halldórsson
- Valgeir Örn Kristjánsson
- Gunnar Númi Hjartarson
Samkvæmt kosningalögum fer kjörstjórn nú yfir listana.