Strandabyggð: kröfum fyrrverandi sveitarstjóra að miklu leyti hafnað

Í viðbrögðum sveitarstjórnar Strandabyggðar við dómi héraðsdóms Vestfjarða um kæru Þorgeirs Pálssonar, fyrrv. sveitarstjóra gegn sveitarstjórninni segir að kröfum hans hafi að miklu leyti verið hafnað.

Þorgeir gerði kröfu um biðlaun í þrjá mánuði vegna uppsagnar hans í apríl á síðasta ári, samtals að upphæð 4,4 milljónir auk dráttarvaxta. Einnig miskabætur að upphæð 1,5 milljón auk dráttarvaxta og loks gerði hann kröfu um að sveitarfélagið greiddi málskostnað hans. Kröfum um biðlaun var hafnað með öllu, en Þorgeiri dæmd hálf milljón í miskabætur. Aðilar málsins eiga sjálfir að greiða sinn málskostnað. 

Sveitarstjórn í fullum rétti við uppsögn og samstaða

„Sveitarstjórn fagnar því eindregið að niðurstaða sé komin í málið. Óánægja er þó vissulega með dæmdar miskabætur, en af dómnum virðist mega ráða að þær séu tilkomnar vegna þess að aðferðin við uppsögnina hafi ekki verið nægilega nærgætin. Þegar dómurinn er lesinn í heild kemur hvergi fram að uppsögnin hafi verið ólögleg eða óréttmæt. Sveitarstjórn var þvert á móti í fullum rétti við að segja starfsmanninum upp í samræmi við ráðningarsamning milli aðila. Eins minnir sveitarstjórn á að fullkomin samstaða var í sveitarstjórninni um að aðrar leiðir væru ekki færar og að uppsögnin væri óhjákvæmileg.“

 

DEILA