Ísfirðingur gengur yfir Grænlandsjökul

Hólmfríður Vala Svavarsdóttir lagði af stað í dag yfir Grænlandsjökul á gönguskíðum. Hún er í hópi undir forystu Vilborgar Arnar Gissurardóttur sem gengur frá vesturströnd Grænlands þvert yfir jökulinn til austurstrandarinnar.

Daníel Jakobsson, eiginmaður Hólmfríðar sagði í samtali við Bæjarins besta að ferðin tæki fjórar vikur og vegalengdin væri um 540 km. Þau hefðu rétt í þessu verið að spenna á skíðin og leggja af stað yfir jökulinn.

Það þarf nokkurn farangur í fjögurra vikna sleðaferð yfir jökulinn.

Myndir: aðsendar.

DEILA