Ísfirsku bræðurnir Makymilian Haraldur, Mikolaj Ólafur og Nikodem Júlíus Frach halda hátíðartónleika
í Hömrum n.k. sunnudag 1. maí kl. 16:00. Bræðurnir stunda nú allir framhaldsnám við Tónlistarakademíuna í Kraká og eru verðlaunahafar alþjóðlegra tónlistarkeppna.
Sérstakur gestur á tónleikunum verður Piotr Tarcholik, konsertmeistari NOSPR sem er ein af leiðandi Sinfóníuhljómsveitum
í Evrópu en hann mun flytja ásamt bræðrunum ein fallegustu kammerverk sígildu tónlistar.
Aðgangur er ókeypis en það verða frjáls framlög í hljóðfærasjóð tónlistarmanna.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Verkefnið er á vegum Vestfjarðastofu.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/04/Frach_a-1024x683.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/04/Frach_b-1024x680.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/04/Frach_d-683x1024.jpg)