Áhöfn Freyju æfði uppgöngu

Áhöfnin á varðskipinu Freyju tók þátt í svokallaðri uppgönguæfingu á dögunum þar sem hluti áhafnarinnar fór um borð í þýsku freigátuna Sacsen.

Áhafnir Landhelgisgæslunnar hljóta margvíslega þjálfun til að bregðast við ólíkum og krefjandi aðstæðum á hafinu umhverfis Ísland.

Norska herskipið Thor Heyerdahl tók einnig þátt í æfingunni sem var liður í Norður-Víkingi 2022.
Á Norður-Víkingi hefur áhöfnum Landhelgisgæslunnar gefist mikilvægt tækifæri til að samhæfa aðgerðir með samstarfsþjóðunum, einkum og sér í lagi á sviði leitar og björgunar.

Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson
DEILA