Á föstudaginn barst Orkubúi Vestfjarða tilkynning frá íbúa á Suðureyri sem hafði orðið var við megna olíulykt frá kyndistöð Orkubúsins á Suðureyri. Við eftirgrennslan kom í ljós að leki hefur komið að olíubirgðatanki fyrir kyndistöðina. Orkubú Vestfjarða hafði strax samband við heilbrigðiseftirlitið, slökkviliðið og lögreglu. Hafist var handa við að tæma olíutankinn strax í kjölfarið og verður hann ekki notaður framar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða.
Olíutankurinn aftengdur
Um er að ræða birgðatank við kyndistöð sem er varaafl fyrir rafkynta hitaveitu á Suðureyri. Undir venjulegum kringumstæðum er kyndistöðin rafkynt, en eins og fram hefur komið í fréttum þá hefur afhending á raforku til kyndistöðvarinnar verið skert vegna ákvæða í samningum á milli Orkubús Vestfjarða og Landsvirkjunar. Til að tryggja hita í hús á Suðureyri óskaði Orkubúið eftir því við Landsvirkjun að fá að skipta aftur yfir á raforku, vegna neyðartilfellis. Landsvirkjun heimilaði það samstundis og kyndistöðin hefur því verið keyrð á raforku síðan og verður það þar til nýr olíutankur hefur verið tengdur.
Orkubú Vestfjarða harmar þær afleiðingar sem olíulekinn hefur haft á fuglalíf á staðnum.
Umfang olíulekans og frekari afleiðingar skýrast væntanlega á næstu dögum. Allar ákvarðanir um frekari viðbrögð og hreinsunaraðgerðir eru teknar í samráði við yfirvöld.