Í síðustu viku gafst loksins færi á að bjóða ólympíufarann hann Snorra Einarsson velkominn heim.
Móttaka Ísafjarðarbæjar fór fram á leikskóladeildinni Tanga á Ísafirði, en krakkarnir þar héldu einmitt sína eigin Ólympíuleika á dögunum.
Snorri sat fyrir svörum og var meðal annars spurður hvenær hann hefði byrjað á gönguskíðum og hvernig hann væri svona duglegur.
Þá var hann spurður hvaða íþróttanammi honum fyndist best. Svarið var „snakk og súkkulaði“ sem vakti mikla lukku hjá hópnum.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2022/03/snorri-2-1-1024x768.jpg)
Krakkarnir fengu svo að skoða keppnisnúmer Snorra og ýmsa minjagripi sem hann kom með heim frá Beijing.