Skipstjóri grænlensks fiskiskips sem var á veiðum djúpt vestur af Ísafjarðardjúpi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að morgni mánudags og óskaði eftir aðstoð vegna veikinda eins skipverjans um borð.
Varðskipið Þór var í grenndinni og hélt þegar á staðinn.
Sjúkraflutningamenn úr áhöfn Þórs fóru frá varðskipinu á léttbát og sóttu sjúklinginn um borð í fiskiskipið.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var sömuleiðis kölluð út og var hugað að sjúklingnum um borð í varðskipinu þar til þyrlan kom og sótti manninn. Var maðurinn hífður um borð í þyrluna síðdegis í gær og flogið með hann til Reykjavíkur þar sem honum var komið undir læknishendur.