Þetta er öðruvísi gúllassúpa þar sem það er hakk í stað gúllas í henni sem gerir það að auki súpunni ódýrari og aðeins léttari.
Ég keypti bara einhvern tímann hakk en langaði meira í súpu og ákvað bara að prufa og hef gert þetta oft síðan. Það er líka upplagt að gera þessa súpu sem hálfgerða naglasúpu, bara nota grænmetið sem til er í ísskápnum.
Innihald:
1 msk olía
400 g nautahakk
5 sneiðar beikon
1 laukur
2 hvítlauksrif
3 gulrætur
1 rauð paprika
5 – 6 kartöflur
5 – 6 sveppir
2 dósir saxaðir tómatar (400 g dósin)
1 líter soð (soðið vatn + tveir nautakraftsteningar)
salt og pipar
1 tsk hvítlauksduft
1 tsk paprikuduft (mér finnst reykt paprika best)
Aðferð:
- Hitið olíu í stórum potti, steikið hakkið og smátt skorið beikon þar til beikonið er orðið stökkt. Kryddið hakkið að sjálfsögðu með salti og pipar.
- Skerið lauk, hvítlauk, gulrætur, papriku, kartöflur og sveppi afar smátt og bætið út í pottinn, steikið í smá stund eða þar til grænmetið er orðið mjúkt.
- Kryddið til með þeim kryddum sem eru talin upp hér að ofan.
- Hellið söxuðum tómötum og soðinu út í pottinn og náið upp suðu.
- Leyfið súpunni að malla í 20 – 30 mínútur, ef þið hafið nægan tíma þá er frábært að leyfa súpunni að malla við vægan hita lengur en súpan verður mun bragðmeiri ef hún fær að malla í svolitla stund.
- Berið súpuna fram með sýrðum rjóma og smátt saxaðri steinselju eða klettasalati.
Verði ykkur að góðu!