Vegagerðin hefur sjaldan staðið fyrir jafn mörgum og viðamiklum framkvæmdum og á síðasta ári. Alls stóð hún fyrir framkvæmdum og viðhaldi á vegakerfinu fyrir rúma 34 milljarða króna en það er töluvert meira en árin á undan. Einnig var töluvert um framkvæmdir við hafnir og sjóvarnargarða.
Miklar framkvæmdir standa yfir á sunnanverðum Vestfjörðum. Unnið er að Vestfjarðavegi um Dynjandisheiði og um Gufudalssveit. Tímamót urðu þegar síðustu samningar náðust við landeigendur í Teigskógi í lok árs og því ekkert til fyrirstöðu að bjóða út þennan umdeilda kafla og ljúka langri og erfiðri sögu vegagerðar á þessu svæði.
Helstu framkvæmdir Vegagerðarinnar á Vestfjörðum voru þessar:
- Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði, 1. áfangi
- Verkið skiptist í tvo kafla. Annars vegar um 5,7 km langan kafla við Þverdalsá og hins vegar um 4,3 km langan kafla fyrir Meðalnes.
- Vestfjarðavegur um Gufudalssveit.
- Gufudalsá-Skálanes. Endurbygging og breikkun á um 6,6 km kafla frá Gufudalsá að Skálanesi. Kaflinn frá Gufudalsá að Melanesi verður ekki hluti af framtíðar Vestfjarðavegi en mun þjóna umferð um Gufudal þar til þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar verður lokið.
- Kinnarstaðir-Þórisstaðir. 2,7 km kafli yfir Þorskafjörð. 260 m löng steypt brú.
- Djúpadalsvegur. Nýbygging Djúpadalsvegar á um 5,7 km kafla.
- Vestfjarðavegur um Bjarnadalsá í Önundarfirði.
- Breikkun brúa, bætt umferðaröryggi.
- Djúpvegur um Hattardalsá
- Nýbygging á 2,6 km vegarkafla ásamt smíði á nýrri brú á Hattardalsá.
- Bíldudalsvegur um Botnsá í Tálknafirði.
- Breikkun brúa, bætt umferðaröryggi.