Fiskistofa hefur tekið saman gögn sem sýna aflasamsetningu skipa á botnvörpu og dragnótaveiðum er lutu eftirliti Fiskistofu á árinu 2021.
Teknar voru saman upplýsingar um aflasamsetningu í veiðiferðum sem farnar voru áður en eftirlitsmaður fór með, meðan eftirlitsmaður er um borð og svo í veiðiferðum sem farnar voru eftir að eftirlitsmaður hafði verið um borð.
Veiðiferðir þar sem eftirlitsmenn eru um borð eru auðkenndar með bláu.
Gögnin sýna mjög skýrt að munur er á magni meðafla í veiðiferðum eftir því hvort eftirlitsmaður er um borð eða ekki.
Í frétt Fiskistofu er ekki lagt mat á í hverju þessi mismunur liggur eða hvort telja megi þennan mismun óeðlilegan.