Lilja Rafney Magnúsdóttir hefur á Alþingi óskað eftir skriflegum svörum frá sjávarútvegsráðherra við tveimur spurningum um ráðstöfun Fiskistofu á aflaheimildum.
1. Hver var úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa skv. 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða sundurliðað eftir fiskveiðiárum tímabilið 2018/2019–2020/2021 að báðum árum meðtöldum?
2. Hver var úthlutun skel- og rækjubáta skv. 3. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, sundurliðað eftir fiskveiðiárum tímabilið 2018/2019–2020/2021 að báðum árum meðtöldum?
Þess er óskað að eftirfarandi þættir verði tilgreindir: skráningarnúmer, nafn skips og einkennisstafir, eigandi þess, heimahöfn, stærð og útgerðarflokkur viðkomandi skips, úthlutað aflamark, magn úthlutaðra skel- og rækjubóta, aflamark sem flutt hefur verið frá skipinu, afli skips og landaður afli í því byggðarlagi sem tilheyrir byggðakvóta skipsins.
Aflatölur og aflamark taki til eftirtalinna tegunda: þorsks, ýsu, ufsa, steinbíts, gullkarfa, keilu og löngu. Allar tölur skulu miðast við óslægðan afla.