Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær, 1. janúar 2022, sæmdi forseti Íslands tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
Þau eru:
- Áslaug Geirsdóttir prófessor, Reykjavík, fyrir störf á sviði jarðvísinda og loftslagsrannsókna.
- Bjarni Felixson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, Reykjavík, fyrir störf á sviði íþróttamála, félagsmála og miðlunar.
- Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur, Reykjavík, fyrir framlag til íslenskra bókmennta.
- Haraldur Ingi Þorleifsson frumkvöðull, Reykjavík, fyrir störf á sviði nýsköpunar og samfélagsmála.
- Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir menntunarfræðingur, Flateyri, fyrir framlag til menntamála og menningarmála í héraði.
- Katrín Fjeldsted heimilislæknir, Reykjavík, fyrir framlag til heilbrigðis- og félagsmála auk starfa í opinbera þágu.
- Kristín Þorkelsdóttir hönnuður, Kópavogi, fyrir brautryðjendastörf á sviði hönnunar og framlag til myndlistar.
- Ólafía Jakobsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, fyrir störf á sviði landverndar og menningarmála í héraði.
- Sigurður Flosason, hljóðfæraleikari og tónskáld, Reykjavík, fyrir framlag til djasstónlistar og störf á vettvangi tónlistarmenntunar.
- Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur og prófessor emeritus, Kópavogi, fyrir rannsóknir og þróun á vinnslu sjávarafurða.
- Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, Reykjavík, fyrir störf í opinbera þágu.
- Trausti Valsson, prófessor emeritus, Reykjavík, fyrir framlag til skipulagsfræða og samfélagsumræðu.
Fram til þessa hafa konur borið riddarakross eða stórriddarakross í slaufu, en karlar í borða. Sú breyting hefur nú verið gerð að orðuband við riddarakross og stórriddarakross orðunnar er hið sama, óháð kyni.
Skráð af Menningar-Bakki.