Hafrannsóknastofnun leitar nú að netabátum fyrir stofnmælingar á hrygningarþorski eða svokallað netarall og hefur Ríkiskaup fyrir hönd stofnunarinnar óskað eftir tilboðum í það verk
Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leiðangrar yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1. apríl.
Markmið rannsóknanna er að safna upplýsingum um kynþroska, aldur, lengd og þyngd þorsks á helstu hrygningarsvæðum. Einnig að meta árlega magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.