Fiskistofa vekur athygli á að hinn 1. janúar taka gildi veiðigjöld sem ákveðin hafa verið fyrir árið 2022 og mun gjald á marga mikilvæga nytjastofna hækka töluvert.
Sem dæmi má nefna að gjald á þorsk mun hækka um 7% í 17,74 krónur á hvert óslægt kíló og gjald á ýsu hækkar um 4% í 17,11 krónur á hvert kíló. Þá hækkar gjald á steinbít um 8% í 14,8 krónur og á skarkola um 17% í 4,24 krónur.
Annars eru veiðigjöldin eftirfarandi fyrir hverja tegund:
Hlýri | 10,04 |
Humar | 30,63 |
Karfi/gullkarfi | 9,59 |
Kolmunni | 2,15 |
Langa | 7,19 |
Langlúra | 19,39 |
Makríll | 5,27 |
Rækja/djúprækja | 6,58 |
Síld | 4,76 |
Skarkoli | 29,21 |
Skötuselur | 22,84 |
Sólkoli/þykkvalúra | 31,32 |
Steinbítur | 14,80 |
Ufsi | 8,82 |
Ýsa | 17,11 |
Þorskur | 17,74 |
Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 59.442 kr., ii) hrefna 9.511 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 594 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).
Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.