Alls voru 229.314 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 403 einstaklinga síðastliðna 12 mánuði.
Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.739 skráða og hefur þeim fjölgað um 88 síðastliðið ár eða um 0,6%.
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 579 meðlimi eða um 14,3% og í Ásatrúarfélaginu um 406 meðlimi eða um 8,0%.
Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi eða um 23,6% en nú eru 157 meðlimir skráðir í félaginu.
Alls voru 29.139 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. eða 7,8% landsmanna.