Smitum fjölgaði í gær á Patreksfirði og ákvað Vettvangsstjórn almannavarna á sunnanverðum Vestfjörðum í samráði við umdæmislækni sóttvarna á Vestfjörðum að setja frekari takmarkanir á starfsemi Vesturbyggðar en verið hafa.
Allt skólahald fellur niður út vikuna, bókasafnið á Patreksfirði verður lokað og einnig deild Framhaldsskólans á Snæfellsnesi á Patreksfirði. Þá fellur niður kennsla í íþrótta- og tónlistarskólanum á Bíldudal.
Þá fellur niður félagsstarf aldraðra í Eyrarseli á Patreksfirði í dag, 25. nóvember.
Starfsemi leikskólans Arakletts á Patreksfirði er viðkvæm vegna manneklu og hvetur Vesturbyggð því þá foreldra sem hafa möguleika á að halda börnum sínum heima, að senda þau ekki á leikskólann næstu tvo daga.
Þá eru íbúar beðnir um að koma ekki í ráðhús Vesturbyggðar nema brýna nauðsyn beri til og gæta þá vel að sóttvörnum.
Heimsóknabann er á legudeild heilbrigðisstofnunarinnar á Patreksfirði.
Vesturbyggð hvetur alla íbúa til að gæta að einstaklingsbundnum sóttvörnum, hafa hægt um sig næstu daga og standa saman eins og samfélaginu einu er lagið til að draga úr frekari hættu á útbreiðslu smita.