Hér eru 154 kaflar tileinkaðir bílum og bílamönnum. Hér eru bílar almennings, lögreglu og slökkviliðs; trukkar jafnt sem eðalvagnar, keppnisbílar, jeppar, vörubílar og húsbílar, svo fátt eitt sé talið.
Auk þess er fjallað um ýmislegt annað sem tengist bílum, svo sem bensín- og smurstöðvar, verkstæði, bílasölur, hjólhýsi, leikföng, söfn og sýningar, að ógleymdri vega- og gatnagerð.
Íslendingar hafa ekki fremur en aðrir farið varhluta af þeirri áhugaverðu þróun bílamenningar sem hér er fjallað um á einstakan hátt.
Bókina prýða rúmlega þúsund ljósmyndir sem margar hafa hvergi sést áður.