Haustrall Hafrannsóknarstofnunar er hafið og stendur yfir næstu fjórar vikur. Alls taka þrjú skip þátt og eru fimm rannsóknamenn á hverju skipi auk áhafnar. Um er að ræða togarana Breka og Múlaberg auk rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar.
Togað verður á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið og er þetta í 25. skipti sem farið er í stofnmælingu botnfiska að haustlagi.
Verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti árlega síðan 1996. Svæðinu er skipt í grunn- og djúpslóð og er togað niður á allt að 1300 m dýpi.
Helsta markmið er að fylgjast með breytingum á stofnstærð, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið.
Fylgjast má með ferðum skipanna á https://skip.hafro.is/ og þar sjást einnig togstöðvar í haustralli