Matvælastofnun hefur auglýst stöðu sérgreinadýralæknis í fisksjúkdómum lausa til umsóknar.
Um er að ræða fullt starf með starfsstöð í höfuðstöðvum stofnunarinnar á Selfossi.
Í starfinu felst m.a. sjúkdómaeftirlit í fiskeldi ásamt stjórnsýslu varðandi inn- og útflutning dýra og dýraafurða.
Meðal verkefna eru reglulegar sýnatökur í fiskeldi vegna vöktunar sjúkdóma og almennt eftirlit.
Úrvinnsla umsókna um inn- og útflutning dýra og dýraafurða, útgáfa heilbrigðisvottorða og ýmis verkefni tengd eftirliti við inn- og útflutning.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.