Opnir fundir um framtíðarsýn í fiskeldi á Vestfjörðum verða haldnir 20. og 21. september.
Á fundunum verður Samfélagssáttmáli og framtíðarsýn fyrirtækja í fiskeldi á Vestfjörðum til umfjöllunar auk þess sem þar verður vettvangur til að ræða þróun atvinnugreinarinnar frá öllum hliðum. Sama dagskrá verður á báðum fundunum sem verða sem hér segir:
Félagheimili Patreksfjarðar – 20. september 2021 kl. 19:30
Fundarstjóri – Ólafur Sveinn Jóhannesson
Edinborgarhúsinu Ísafirði – 21. september 2021 kl. 19:30
Fundarstjóri – Héðinn Unnsteinsson
Sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð undirrituðu samfélagssáttmála í fiskeldi 15. júlí 2021 sem unnið var að í samstarfi við Vestfjarðastofu. Tilgangur sáttmálans er að standa sameiginlega að hagsmungæslu í fiskeldi og tengdum atvinnugreinum á Vestfjörðum með að markmiði að efla atvinnu- og mannlíf með heildarhagsmuni Vestfjarða að leiðarljósi.
Á fundinn koma allir hagaðilar í fiskeldi og kynna starf sitt og framtíðarsýn.
Dagskrá fundarinns
- Ávarp
- Kynning á samfélagssáttmála um fiskeldi
- Kynning á skýrslu KPMG um greiningu á áhrifum fiskeldis á Vestfjörðum
- Erindi frá Hafrannsóknarstofnun
- Erindi frá Matvælastofnun
- Erindi um stöðu fiskeldis á Vestfjörðum
- Kynningar frá fyrirtækjum tengdum fiskeldi
- Pallborðsumræður
Hér gefst því einstakt tækifæri til að ræða við þá aðila sem koma að fiskeldi á Vestfjörðum. Það eru allir velkomnir á fundinn en vegna sóttvarnareglna er mikilvægt að skrá sig á heimasíðu
Vestfjarðastofu www.vestfirdir.is