Gríski þjálfarinn Dimitris Zacharias og Körfuknattleiksdeild Vestra hafa komist að samkomulagi um að hann þjálfi hjá félaginu á komandi leiktíð.
Dimitras mun taka að sér hlutverk yfirþjálfara meistaraflokks kvenna og mun njóta aðstoðar Péturs Más Sigurðssonar á þeim vettvangi. Einnig mun hann sinna hlutverki aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla með Pétri Má, ásamt því að þjálfa yngri flokka félagsins.
Dimitras lauk B.Sc. gráðu í íþróttafræði, með áherslu á körfuboltaþjálfun frá Háskólanum í Aþenu árið 2003. Hann á að baki farsælan feril sem þjálfari á öllum stigum frá yngri flokkum upp í meistaraflokka karla og kvenna.
Á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað í Grikklandi, á Írlandi og nú síðast í Egyptalandi. Í heimalandinu hefur hann undanfarin ár verið yfirþjálfari meistaraflokka karla og kvenna hjá Kiriarchi körfuknattleiksfélaginu í Aþenu, auk þess að stýra þjálfunarstefnu yngri flokka (Technical Director).
Tímabilið 2018-2019 var hann yfirþjálfari í úrvalsdeild kvenna á Írlandi og skilaði liði sínu Waterford Wildcats í úrslitakeppni í fyrsta sinn í áratugi.