Í kvöld kl 21.00 verða síðustu tónleikar nir í sumar i garðinum hjá Láru á Þingeyri og er það hljómsveitinn Hjálmar sem mun klára sumarið.
Tónleikarnir hafa verið vel sóttir i sumar og hafa að sögn Péturs Alberts Sigurðssonar um 5000 manns mætt i garðinn.
Í garðinum hjá Láru er röð tónleika á Þingeyri sem hófst í júní. Frítt er inn á viðburðina. Verkefnið Öll vötn til Dýrafjarðar , sem er frumkvæðissjóður sem veitir verkefnastyrki í umboði Byggðastofnunar til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð, veitti 900.000 kr styrk til Láru Dagbjartar Halldórsdóttur, sem notaður var til þess að smíða tónleikapall í garðinum.
Myndir: aðsendar.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2021/07/Lara_7C2A3216_minni-1024x683.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2021/07/Lara_7C2A3377_minni-1024x683.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2021/07/Lara_7C2A3644_minni-1024x683.jpg)