Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurland, Hornafjörður og Vestmannaeyjar. Svæðið er afmarkað með tilliti til póstnúmera. Alls ná afsláttarkjör Loftbrúar til rúmlega 60 þúsund íbúa á þessum svæðum.
Afsláttarkjörin nýtast öllum þeim sem sækja miðlæga þjónustu og afþreyingu á höfuðborgarsvæðið og til að heimsækja ættingja og vini. Markmið verkefnisins er að jafna aðstöðumun íbúa og efla byggðir landsins með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti. Loftbrú er ætluð fólki sem fer í einkaerindum til höfuðborgarinnar en ekki fyrir ferðir í atvinnuskyni eða hefðbundnar vinnuferðir.
Einn hópur hefur sérstöðu og um hann gildir undantekning frá reglunni um að eiga lögheimili á landsbyggðinni. Börn sem eru með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu en eiga foreldra eða forráðamenn sem hafa búsetu á landsbyggðinni eiga rétt á Loftbrú.