Tónlistartríóið Fáheyrt verður á Vestfjörðum í sumar en verkefnið er styrkt af Tónlistarsjóði.
Í tríóinu eru ÞAU: Rakel Björk Björnsdóttir leik- og söngkona við Borgarleikhúsið, Garðar Borgþórsson gítar- og trommuleikari, og Ingimar Ingimarsson organisti.
Fáheyrt mun koma fram í kirkjum á fáheyrðum stöðum á Vestfjörðum og flytja þar frumsamin lög við ljóð vestfirskra skálda, svo sem Stein Steinarr, Ólínu Þorvaðardóttur, Höllu skáldkonu Eyjólfsdóttur og Tómas G. Geirdæling. Einnig verða flutt lög eftir Mugison og Sigvalda Kaldalóns.
Í dag kl 15 eru tónleikar í kirkju Listasafns Samúels í Selárdal og á morgun eru tónleikar í Skrímslasetrinu á Bíldudal.
TÓNLEIKAR FÁHEYRT
– lög við ljóð vestfirskra skálda –
8. júlí (fim) — Gufudalskirkja í Gufudal kl. 15:00
10. júlí (lau) — Flateyjarkirkja í Flatey kl. 15:00
10. júlí (lau) — Hótel Flatey kl. 21:30 (upphitun fyrir ball, Skárren ekkert)
13. júlí (þrið) — Kirkja Listasafns Samúels í Selárdal kl. 15:00
14. júlí (mið) — Skrímslasetrið Bíldudal kl. 21:00
15. júlí (fim) — Þingeyrarkirkja á Þingeyri kl. 15:00
15. júlí (fim) — Húsið á Ísafirði kl. 21:30
16. júlí (fös) — Súðavíkurkirkja í Súðavík kl. 15:00
17. júlí (lau) — Heydalur kl. 21:00
19. júlí (mán) — Unaðsdalskirkja í Unaðsdal kl. 15:00
19. júlí (mán) — Steinshús kl. 21:00
21. júlí (mið) — Síldarverksmiðjan í Djúpuvík kl. 13:00 og kl. 21:00
24. júlí (lau) — Reykhólakirkja á Reykhólum kl. 16:00
Aðgangur ókeypis á alla tónleika!
Heimasíða: https://www.thauduet.com/
Facebook: https://www.facebook.com/thauduet
Instagram: https://www.instagram.com/thauduet/