Einstaka sinnum þegar úrkoma fellur úr skýjum nær hún ekki til jarðar heldur gufar upp á leiðinni.
Þetta fyrirbæri kallast úrkomuslæður (e. virga) og má sjá á meðfylgjandi mynd. Ástæður fyrir uppgufuninni geta verið margvíslegar, t.d. getur lágt rakastig eða hærra hitastig loftsins í lægri hæðum stuðlað að uppgufun.
Einnig getur rísandi loft hindrað úrkomuna í að ná til jarðar. Úrkomuslæður eru algengar á svæðum með þurru loftslagi.
Samkvæmt skýjabók Alþjóðaveðurfræði-stofnunarinnar (WMO) myndast úrkomuslæður aðallega út frá maríutásum, netjuskýjum, grábliku, regnþykkni, flákaskýjum, bólstraskýjum eða skúraskýjum.
Af vedur.is