Formaður og framkvæmdastjóri LS funduðu með sjávarútvegsráðherra sl. miðvikudag. Þar kynnti Landsamband smábátasjómanna tillögu sína um leyfilegan hámarksafla í þorski sem þeir lögðu til að yrði 257 þús. tonn eða tæpum 40 þús tonnum meira en Hafrannsóknarstofnun lagði til og sjávarútvegsráðherra samþykkti.
Í tillögu sinni segir LS að á grundvelli tugaprósenta ofmats Hafrannsóknastofnunar á veiði- og hrygningarstofni og nýliðun hafi þeir ákveðið að leggja til við ráðherra að hreyfa ekki við aflamarki í þorski.
Úrvinnsla og mat Hafrannsóknastofnunar væri ótrúverðugt og því ekki ástæða til að stökkva á það fyrr en að fenginni ítarlegri skoðun óvilhallra sérfræðinga, sjó- og vísindamanna segir í tillögunni.