Laugardaginn 12. júní s.l. var Harmonikudagurinn haldinn hátiðlegur í Félagsheimilinu á Þingeyri. Þessi samkoma á sér ríka hefð á Þingeyri þar sem HARMONIKUKARLARNIR og LÓA ásamt fleirum hafa staðið fyrir balli og kaffiveitingum í samvinnu við Kvenfélagið Von ár hvert allt aftur til ársins 1982, um hábjartan dag.
Harmonikufélag Vestfjarða lagði hönd á plóg við undirbúning þetta árið og bauð öllum sem mættu upp á frítt kaffi, kleinur og vöfflur með rjóma, sem Kvenfélagið Von annaðist með sóma. Alls þáðu 97 manns veitingar auk annara sem litu inn til að dansa, hlusta og hitta mann og annann.
HARMONIKUKARLARNIR og LÓA stigu fyrst á svið, 7 talsins, meðalaldurinn 80 ár og spiluðu stanslaust í klukkustund og slógu ekkert af. Síðan tóku við þeir Baldur Geirmunds, Villi Valli og Magnús Reynir, meðalaldur 84 ár, og spiluðu til kl 5 síðdegis, þar með lauk þessari hátíð sem hófst kl 3.
Áður var haldinn aðalfundur Harmonikufélags Vestfjarða fyrir árin 2019 og 2020. Fór hann fram með hefðbundnum hætti. Núverandi stjórn skipa: Hafsteinn Vilhjálmsson formaður, Magnús Reynir Guðmundsson varaformaður, Sigríður Gunnarsdóttir ritari, Karitas Pálsdóttir gjaldkeri og Helga Ásgeirdóttir meðstjórnandi.
Myndir: Haukur Sigurðsson.