Lið Grunnskólans í Bolungarvík er komið áfram í úrslitakeppni Skólahreysti 2021 sem fer fram þann 29. maí næstkomandi.
Liðið keppti í 3. riðli og lenti þar í öðru sæti aðeins einu stigi á eftir Holtaskóla sem sigraði.
Í Skólahreysti er keppt í sjö undanriðlum og fer sigurliðið í hverjum riðli í tólf liða úrslit ásamt fimm liðum með bestan árangur í öðru eða lægra sæti.
Þegar riðlunum sjö lauk nú á dögunum kom í ljós að Grunnskóli Bolungarvíkur hefur unnið sér inn sæti í úrslitum Skólahreysti sökum góðs árangurs í öðru sæti.
Liðið er skipað Guðmundi Páli og Eydísi Birtu úr 10. bekk, Ingibjörgu Önnu úr 9. bekk og Gunnari Agli úr 8. bekk og varamenn eru Agnes Eva í 9. bekk og Sigurgeir Guðmundur í 8. bekk.
Þetta er besti árangri sem Grunnskóli Bolungarvíkur hefur náð í keppninni til þessa.