Aðalfundur Blakdeildar Vestra vegna starfsársins 2020, verður haldinn í Vallarhúsinu við Torfnesvöll fimmtudaginn 29. apríl kl. 17:00.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf:
- Fundarsetning.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Formaður blakdeildar gerir grein fyrir starfssemi deildarinnar á liðnu starfsári.
- Gjaldkeri blakdeildar leggur fram til samþykktar og gerir grein fyrir reikningum deildarinnar sem staðfestir hafa verið af kjörnum skoðunarmanni og gjaldkera aðalstjórnar.
- Reglugerðabreytingar.
- Kosningar:
- a) Kosinn formaður deildar til eins árs.
- b) Kosið í meistaraflokksráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
- c) Kosið í yngriflokkaráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.
- Önnur mál.
Félagar og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.