Við höfnina á Reykhólum eru menn frá Vegagerðinni með borpramma.
Þeir eru að kanna botnlag í höfninni á Reykhólum áður en hönnun hefst á nýju stálþili sem á að reka niður utan á gamla þilið.
Þegar stálþil eru endurnýjuð er það yfirleitt gert þannig að nýja þilið er rekið niður utan við gamla þilið, sem verður síðan hluti af fyllingunni í bryggjunni sem stækkar dálítið við þetta, auk þess sem viðlegukanturinn verður lengdur.
Að lokinni vinnu við höfnina á Reykhólum verður farið með borprammann vestur í Djúpafjörð og Gufufjörð til að kanna brúarstæði þar.