Í tilkynningu frá kjörstjórn Framóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi segir að fram fari póstkosning um val á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir Alþingiskosningarnar á næsta ári, samkvæmt reglum flokksins þar um.
Framboðsfrestur til þátttöku í póstkostningunni rennur út þriðjudaginn 17. janúar 2021, kl. 12:00 á hádegi.
Kjörskrá verður gerð samkvæmt félagatali 2. janúar 2021.
Framboðum skal skila til formanns kjörstjórnar, Valgarðs Hilmarssonar, á netfangið vallih@centrum.is. Formaður veitir einnig frekari upplýsingar.
Atkvæðisseðlar verða sendir út 1. febrúar og er frestur til að skila þeim inn til og með 26. febrúar. Kosið verður um 5 efstu sæti listans.
Framsóknarflokkurinn fékk tvo þingmenn kjörna í Alþingiskosningunum 2017, þau Ásmund Einar Daðason og Höllu Signýju Kristjánsdóttur. Alls verður kosið um 8 þingsæti í kjördæminu í næstu kosningum. Þær munu fara fram í september 2021.