Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar frestaði því á fundi sínum fyrir helgi að framlengja samning við Kómedíuleikhúsið um eitt ár, út árið 2021.
Bæjarráðið lagði til að samningurinn, sem er til þriggja ára og rennur út í lok ársins, yrði framlengdur um eitt ár.
Samningurinn kveður á um fasta greiðslu á mánuði til Kómedíuleikhússins, liðlega 1,5 milljón króna yfir árið gegn sýningum af hálfu leikhússins í leik- og grunnskólum, svo og við tækifæri eins og 17. júní.
Nanný Arna Guðmudsdóttir, bæjarfulltrúi Í listans lagði hins vegar til að málinu yrði vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar og var það samþykkt.
Tillaga bæjarráðs kom því ekki til afgreiðslu.