Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið minnir á að opnað hefur verið fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2020 í Bústofni.
Í samræmi við lög um búfjárhald er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofni, eigi síðar en 20. nóvember.
Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu það er.
Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum og fyrningar, auk upplýsinga um aðra fóðuröflun og landstærðir.
Minnt er á að skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum í landbúnaði eru fullnægjandi skil á haustskýrslu.
Skráning í Bústofn er með rafrænu skilríki eða Íslykli.