Það eru ánægjulegar fréttir að íslenskir fjárfestar sýni sunnanverðum Vestfjörðum áhuga segir Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð við tíðindum dagsins, en íslenskir fjárfestar hafa skráð sig fyrir nærri fimm milljarða króna hlutafjáraukningu í Arnarlax hf.
Rebekka skrifar á vefsíðu Vesturbyggðar:
„Arnarlax og íbúar á sunnanverðurm Vestfjörðum. Hjartanlega til hamingju með fréttir af nýjum hluthöfum í þessu öfluga fyrirtæki sem starfar hér í Vesturbyggð. Það er ánægjulegt að sjá að íslenskir fjárfestar hafi loks séð þau miklu tækifæri sem liggja í þessari mikilvægu atvinnuuppbyggingu á sunnanverðum Vestfjörðum.“
Hún óskar lífeyrissjóðunum Gildi og Stefni, sjóðstýringafyrirtæki Arion banka til hamingju með þátttöku sína í hlutafjárútboði Arnarlax og áætlunum um mikilvæga fjármögnun inn í fyrirtækið.
„Fiskeldið hefur haft gríðarleg áhrif á samfélagið í Vesturbyggð og er dæmi um eitt það áhrifamesta einkaframtak í atvinnuuppbyggingu sem hefur haft jákvæð áhrif á byggðaþróun á síðari árum. Atvinnumögleikum fjölgað og samfélag og byggðin okkar blómstrar. Við bjóðum því íslenska fjárfesta velkomna til að taka þátt í þessari jákvæðu þróun og skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið, sérstaklega nú á erfiðum tímum.“