Halldór Ó. Zoega deildarstjóri mannvirkjadeildar Samgöngustofu stðafestir í svari við fyrirspurn Jónasar Guðmundssonar f.h. Samgöngufélagsins að gerð verði úttekt á öryggismálum í jarðgöngum á Vestfjörðum. Halldór segir að vegna Covid hefur verkinu seinkað en úttektir verða gerðar.
Tilefni fyrirspurnar Samgöngufélagsins um úttekt Samgöngustofu á Bolungarvíkurgöngum og göngum undir Breiðadals- og Botnsheiði var að Samgöngustofa hafði nýverði í samræmi við hlutverk sitt látið fara fram úttekt á öryggismálum í veggöngum í Fjallabyggð (Múla-, Héðinsfjarðar- og Strákagöngum). Skýrslan er dagsett er 18. september 2020 og hefur verið rædd í bæjarráði Fjallabyggðar.
Jónas Guðmundsson vakti athygli á vanköntum í öryggismálum í Vestfjarða- og Bolungavíkurgöngum, sem einkum snúa að símasambandi, fjarskiptum og útvarpssambandi.
Benti hann á að í Bolungarvíkurgöngum er búnaður til útvarpsútsendinga, sem félag hans Leið ehf., lagði til og var tekinn í notkun í desember 2017 samkvæmt samningi við Vegagerðina „enda ekki boðlegt að ná ekki útsendingum útvarps í jafn fjölförnum göngum og um ræðir. Þessi búnaður hefur hins vegar ekkert verið virkjaður til aukins öryggis eftir því sem næst verður komist.“ segir Jónas í greinargerð með fyrirspurninni. Þá hefur GSM samband í göngunum verið frekar veikt.
Þá segir Jónas að í göngunum undir Breiðadals- og Botnsheiðar hátti þannig til eftir því sem næst verður komist, „að aðeins er hægt að nota GSM-síma eins símafyrirtækis, þ.e. Símans, til almennra nota þótt hægt sé að ná sambandi við Neyðarlínuna úr síma hvaða símfyrirtæki sem er. Þá er ekkert útvarpssamband í þessum göngum, sem bæði eru
löng, eða alls 9 km og þar af 7 km einbreið og má búst við talsvert vaxandi umferð eftir að Dýrafjarðargöng (Hrafnseyrargöng) verða tekin í notkun.“
Lýkur Jónas fyrirspurninni með því að hvertja til úrbóta á þessu ástandi.