Kosin var stjórn Fjórðungssambands Vestfjarða til næstu tveggja ára á þingi Fjórðungssambandsins um síðustu helgi.
Hafdís Gunnarsdóttir, Ísafjarðarbæ er áfram formaður Fjórðungssambandsins. Aðrir í stjórn eru Þórir Guðmundsson, Ísafjarðarbæ, Iða Marsibil Jónsdóttir, Vesturbyggð, Kristján Jón Guðmundsson, Bolungavík og Jóhanna Ösp Einarsdóttir, Reykhólahreppi.
Sú breyting varð á skipan stjórnar frá síðustu stjórn að Sigurður Jón Hreinsson, Ísafjarðarbæ gekk úr stjórn og Þórir Guðmundsson kom í hans stað.
Samkomulag var gert um formannsstöðuna og mun næsta haust Hafdís Gunnarsdóttir láta af formennsku og Jóhanna Ösp Einarsdóttir taka við embættinu.