Karlalið Vestra lék í Lengjudeildinni í kvöld á Olísvellinum á Ísafirði. Leikið var gegn liði Þórs frá Akureyri og vann Vestri góðan sigur 4:1.
Pétur Bjarnason skoraði í fyrri hálfleik á 19. mín og Vestri leiddi 1:0 í leikhléi. Þórsarar jöfnuðu leikinn strax í upphafi síðari hálfleiks. Tíu mínútum síða kom Ignacio Gil Echevarria Vestra aftur yfir og á 67. mínútu skoraði Friðrik Þórir Hjaltason þriðja mark Vestra þegar hann hirti lausan bolta í vítateig norðanmanna og skoraði af stuttu færi. Skömmu fyrir leikslok skoraði Vladimir Tufegdzic fjórða markið.
Leikurinn var nokkuð opinn og færi á báða bóga, sem oft sköpuðust eftir mistök í varnaleiknum. Eins sáust góð tilþrif og skemmtilegt samspil.
Sigur Vestra verður teljast sanngjarn og undirstrikar að liðið er mun betra en ætlað var í upphafi leiktíðar.
Vestri er með 19 stig eftir 13 umferðir og er í 7. sæti.