Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar heimsækir suðursvæði Vestfjarða á morgun og miðvikudag. Með honum í för verður þingmaður kjördæmisins, Guðjón S. Brjánsson. Þeir munu heimsækja stofnanir, fyrirtæki og sveitastjórnarfólk á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal.
Á þriðjudagskvöld kl. 20,00 verður opinn fundur í félagsheimilinu á Patreksfirði með stuðningsfólki og öðrum áhugasömum íbúum um þau mál sem hæst ber um þessar og mundir og áherslur á komandi þingvetri.