Landsréttur kvað upp þann 26. júní í sumar upp dóm í kæru Ólafs Valssonar á hendur Árneshreppi og hafnaði kröfum um að hreppsnefndarkosningarnar yrðu ógiltar. Landsréttur staðfesti að öllu leyti dóm Héraðsdóms Vestfjarða og dæmdi Ólaf til þess að greiða Árneshreppi 600.000 kr. í málskostnað.
Fyrir liggur að ekki verður reynt að áfrýja til Hæstaréttar og er því þessum málarekstri lokið.
Upphaf málsins má rekja til átaka um meirihluta í hreppsnefnd Árneshrepps. Deilt var um áform um Hvalárvirkjun. Skömmu fyrir hreppsnefndarkosningar 2018 fjölgaði skyndilega íbúum í Árneshreppi. Þjóðskrá Íslands hóf frumkvæðisrannsókn og felldi niður lögheimilisskráningar allnokkurra einstaklinga í sveitarfélaginu þar sem þeir uppfylltu ekki skilyrði laga fyrir því að skrá lögheimili sitt á ýmsum jörðum í hreppnum, meðal annars eyðijörðum. Í framhaldi af því voru þeir teknir af kjörskrá.
Niðurstaða hreppsnefndarkosninganna varð sú að stuðningsmenn Hvalárvirkjunar höfðu betur og er hreppsnefndin nýja einhuga í stuðningi sínum.
Tveir íbúar í Árneshreppi, Ólafur Valsson og Elías Kristinsson, kærðu úrslit kosninganna til sýslumanns og töldu þær ólögmætar.