Lýðskólinn á Flateyri verður settur í þriðja sinn laugardaginn 19. september í Samkomuhúsi Flateyringa og hefst athöfnin kl: 14:00.
Þar sem enn eru í gildi samkomutakmarkanir vegna Covid19 verður athöfninni streymt á viðburði á facebook síðu skólans, hægt verður að nálgast hlekk þar til að fylgjast með athöfninni.
Félagsfundur Lýðskólans á Flateyri verður haldinn í Gunnukaffi, Hafnarstræti 11 á Flateyri kl: 11:30.
Dagskrá fundarins:
- Breyting á samþykktum félagsins
- Kosning aðalmanns í stjórn
- Önnur mál