Í gær voru opnuð tilboð í tvo vegarkafla á Vestfjarðavegi 60.
Fjögur tilboð bárust í 1. áfanga Dynjandisheiði. Verkið skiptist í tvo kafla. Annars vegar um 5,7 km langan kafla við Þverdalsá og hins vegar um 4,3 km langan kafla fyrir Meðalnes í Arnarfirði. Verkinu skal að fullu lokið 30. september 2021.
Áætlaður verktakakostnaður er kr. 1.511.612.918.
Lægsta tilboðið var frá Borgarverki ehf í Borgarnesi og var það 1,7 milljarðar króna eða 196 milljónir króna yfir kostnaðaráætlun.
Tilboðin sem bárust voru þessi :
Suðurverk hf., Kópavogi kr. 1.963.104.806 129,8% af kostnaðaráætlun
Ístak hf., Mosfellsbæ kr. 1.924.029.730 127,3%
Íslenskir aðalverktakar hf., kr. 1.732.973.575 114,6 %
Borgarverk ehf., Borgarnesi kr. 1.708.086.000 113,0 %
Í hitt verkið, brúargerð um Botnsá í Tálknafirði barst aðeins eitt tilboð. Það var frá Kubbi ehf Ísafirði sem bauð 257 milljónir króna í verkið. Kostnaðaráætlun er 205,3 m.kr. Verkinu skal að fullu lokið 25. október 2021.