Bandaríski bakvörðurinn Ken-Jah Bosley hefur skrifað undir samning við Kkd. Vestra og leikur með meistaraflokki karla á næsta leiktímabili.
Bosley útskrifaðist frá Kentucky Wesleyan háskólanum árið 2017 (D2) og var þriðji stigahæsti leikmaður liðsins frá upphafi.
Frá útskrift í Kentucky hefur Bosley leikið í Ástralíu, Palestínu og Lúxemborg.
Á síðasta leiktímabili var hann stigahæsti leikmaður N2 deildarinnar í Lúxemborg með liði sínu Auanti Mondorf en hann skoraði 38.6 stig að meðaltal í leik.
Bosley er 185 sm á hæð og getur spilað bæði sem leikstjórnandi og skotbakvörður.