Á fyrsta ársfjórðungi 2020 var góður afkoma og hagnaður varð 795 þúsund evrur eða um 130 m.kr. Á öðrum fjórðungi varð afkoman neikvæð um 410 þúsund evrur. Samanlögð afkoma félagsins fyrir fyrri hluta ársins varð hagnaður upp á 384 þúsund evrur eða um 62 milljónir króna. Félagið seldi um 860 tonn af slægðum laxi á fyrsta ársfjórðungi og 805 tonn í öðrum ársfjórðungu, samtals 1.665 tonn. Auk þess seldi félagið smáseiði til annara eldisfyrirtækja. Gert er ráð fyrir að framleiðsla ársins verði liðlega 8.000 tonn.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Góður árangur í eldinu
Í tilkynningunni segir:
„Framleiðslukostnaður er stöðugur og hefur náðst góður árangur í sjálfu eldinu. Fiskurinn vex vel og er heilbrigður.
Áfram er unnið markvisst að því að lækka framleiðslukostnað enda er hann hærri hér en í öðrum löndum þar sem laxfiskaeldi er stundað. Einnig má benda á að flutningskostnaður á okkar helstu markað eri líka hærri en hjá samkeppnislöndum. Það er mikilvægt fyrir fyrirtækið að geta straumlínulagað kostnað til þess að geta tekist á við ófyrirséðar sveiflur.“
Afurðaverð á erlendum mörkuðum hefur hins vegar lækkað eftir að covid 19 kom upp en Fishpool, sem heldur utan um laxaverðsvísitölu, spáir því að verð hækki á komandi mánuðum. Til lengri tíma litið gerir fyrirtækið ráð fyrir því að verð á mörkuðum nái jafnvægi.
Fjármögnun tryggð
Arctic Fish er í góðu ferli með viðskiptabönkum sínum varðandi framtíðarfjármögnun fyrirtækisins, segir í fréttatilkynningunni. Eigendur félagsins hafa nýlokið við frekari fjármögnun til félagsins sem styrkir skammtímastöðu félagsins.
„Þá er ljóst að það mun þurfa að fjárfesta mikið á komandi mánuðum og árum til þess að auka sjálfbærni og arðbærni félagsins. Þessar miklu fjárfestingar munu kalla á áframhaldandi fjárhagslegan stuðning frá eigendum sem og góðum langtímasamningum við viðskiptabanka félagsins.“
Áframhaldandi uppbygging
Áætlað að halda óbreyttum áformum um áframhaldandi uppbyggingu á starfsemi félagsins til lengri tíma.